U19 karla - 5-2 sigur gegn Grikklandi
U19 ára landslið karla vann frábæran 5-2 sigur gegn Grikklandi í undankeppni EM 2020, en leikið er í Belgíu.
Kristall Máni Ingason skoraði tvö mörk og þeir Orri Hrafn Kjartansson, Valgeir Valgeirsson og Ísak Bergmann Jóhannesson skoruðu sitt markið hver.
Ísland mætir Albaníu í síðasta leik sínum í riðlinum á þriðjudag kl. 13:30 að íslenskum tíma.