U19 karla - Ísland mætir Grikklandi á laugardag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U19 ára landslið karla mætir Grikklandi á laugardag í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2020, en leikið er í Belgíu.
Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Belgíu 0-3 á meðan Grikkir unnu góðan 5-1 sigur gegn Albaníu.
Hægt verður að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á vef UEFA, en hann hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma.