Þorvaldur Árnason dæmir í undankeppni EM 2020
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorvaldur Árnason dæmir leik San Marínó og Rússlands í undankeppni EM 2020.
Leikurinn fer fram þriðjudaginn 19. nóvember í Serravalle í San Marínó.
Honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon. Fjórði dómari er Ívar Orri Kristjánsson.