Byrjendanámskeið fyrir dómara haldið hjá ÍR 4. nóvember
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá ÍR í Seljaskóla mánudaginn 4. nóvember kl. 19:30.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍR og stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is