U17 karla - Ísland mætir Armeníu á mánudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U17 ára landslið karla mætir Armeníu á mánudag í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2020.
Strákarnir hafa tapað báðum leikjum sínum til þessa, gegn Króatíu og Skotlandi.
Tvö efstu lið hvers riðils fara áfram ásamt fjórum liðum í 3. sæti með bestan árangur gegn efstu tveimur liðum síns riðils.
Leikurinn hefst kl. 19:05 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á vef UEFA.