U17 karla - Ísland mætir Skotlandi á föstudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U17 ára landslið karla mætir Skotlandi á föstudag í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2020, en leikið er í Skotlandi.
Ísland tapaði 2-3 fyrir Króatíu í fyrsta leik liðsins í riðlinum á meðan Skotland vann 2-0 sigur gegn Armeníu.
Leikurinn fer fram á Forthbank og hefst kl. 17:00 og verður hann í beinni útsendingu á BBC Sport Online.