Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá HK 24. október
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá HK í Kórnum fimmtudaginn 24. október kl. 19:00.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við HK. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is