U21 karla - Brynjar Atli Bragason inn í hópinn
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur þurft að gera eina breytingu á hópnum fyrir leikinn gegn Írlandi.
Brynjar Atli Bragason, Njarðvík, kemur inn í hópinn fyrir Daða Frey Arnarson vegna meiðsla hans.