U19 karla - 1-1 jafntefli gegn Svíþjóð
U19 ára landslið karla gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð í dag í æfingaleik, en leikið var í Finnlandi.
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði fyrsta mark leiksins á 40. mínútu eftir stoðsendingu Karls Friðleifs Gunnarssonar.
Svíar jöfnuðu leikinn í síðari hálfleik og hefðu síðan getað skorað sigurmarkið í uppbótartíma, en Hákon Rafn Valdimarsson varði tvisvar glæsilega í marki Íslands.