Sigurmark undir lokin
U19 landslið karla vann 1-0 sigur á Finnum í vináttuleik sem fram fór ytra í dag, miðvikudag, og kom sigurmarkið undir lok leiksins. Um hörkuleik var að ræða, jafnræði milli liðanna, og hvorugt lið gaf mörg færi á sér. Það stefndi allt í markalaust jafntefli þegar Vuk Óskar Dimitrijevic skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu.
Íslenska liðið leikur annan vináttuleik í þessari ferð á föstudag, þegar liðið mætir Svíum.
Mynd með grein; Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.