U19 kvenna - Riðill Íslands hefst á miðvikudaginn hér á landi
U19 ára landslið kvenna hefur leik á miðvikudaginn í undankeppni EM 2020, en riðill liðsins er leikinn hér á landi.
Ísland er í riðli með Spáni, Grikklandi og Kasaktsan og mætir Grikklandi í fyrsta leiknum á miðvikudag.
Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á SportTV.
Leikir Íslands
2. október - Ísland - Grikkland á Víkingsvelli kl. 17:00
5. október - Ísland - Kasakstan á Würth vellinum kl. 14:00
8. október - Ísland - Spánn á Origo vellinum kl. 17:00