Afhending miða á leiki Íslands í október fyrir handhafa A og DE skírteina
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Handhafar A og DE skírteina KSÍ geta nú sótt um miða á landsleiki A karla gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM 2020.
Hægt verður að nálgast miðana rafrænt á vef tix.is til föstudagsins 4. október og má finna slóðir inn á þá hér að neðan.
Leikurinn gegn Frakklandi fer fram föstudaginn 11. október kl. 18:45 og er leikinn á Laugardalsvelli.
Leikurinn gegn Andorra fer fram mánudaginn 14. október kl. 18:45 og er leikinn á Laugardalsvelli.