Vilhjálmur Alvar Þórarinsson á dómaranámskeiði hjá UEFA
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er staddur í Hollandi á dómaranámskeiði hjá UEFA um myndbandsdómgæslu.
Markmið námskeiðsins eru eftirfarandi:
Fá kennslu í VAR vinnubrögðunum og VAR vinnureglum UEFA
Að venjast VAR herminum og tengdum tækjum.
Æfa myndbandsdómgæslu bæði sem myndbandsdómari og sem dómari á velli með myndbandsdómara.
Þetta námskeið er það fyrsta af þremur og er hluti af því að fá staðfestingu sem myndbandsdómari hjá UEFA.