217 áhorfendur að meðaltali á leiki Pepsi Max deildar kvenna
Keppni í Pepsi Max deild kvenna lauk um liðna helgi. Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni eftir æsispennandi baráttu bið Breiðablik.
Alls sóttu 19.497 áhorfendur leikina 90 í deildinni í sumar, eða 217 manns á leik að meðaltali. Um nokkra hækkun er að ræða milli ára, en í fyrra var meðalaðsóknin 186.
Breiðablik var að meðaltali með bestu aðsóknina, eða 408 áhorfendur á leik, og Íslandsmeistarar Vals voru með 340 áhorfendur að meðaltali. Best sótti leikurinn í sumar var einmitt viðureign þessara liða á Kópavogsvelli í 17. umferð, en þar mættu 1.206 áhorfendur, og næst best sótti leikurinn var viðureign sömu liða á Origo-vellinum, þar sem mættu 828 manns.
Félag | Meðaltal |
Breiðablik | 408 |
Valur | 340 |
Þór/KA | 222 |
Selfoss | 220 |
Fylkir | 211 |
Stjarnan | 190 |
HK/Víkingur | 164 |
Keflavík | 149 |
KR | 146 |
ÍBV | 117 |
Alls | 217 |