U17 kvenna - Ísland mætir Möltu á miðvikudag
U17 ára landslið kvenna mætir Möltu á miðvikudaginn í undankeppni EM 2020.
Þetta er annar leikur liðsins í riðlinum, en Ísland vann frábæran 10-1 sigur gegn Hvíta Rússlandi í fyrsta leiknum.
Leikurinn hefst kl. 09:00 að íslenskum tíma og fer fram á Spartak Stadion í Mogilev, Hvíta Rússlandi.
Hægt verður að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á Facebook síðu KSÍ.