Námslínan ,,Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum" að hefjast
Þann 8. október hefst námslínan Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum í Opna háskólanum í HR.
Okkar félög falla vel innan þriðja geirans því með honum er átt við félög sem starfa í almannaþágu. Oft á tíðum eru áskoranirnar öðruvísi en hjá hagnaðardrifnum félögum eða opinberum stofnunum.
Til að mynda er fjármögnun með öðrum hætti og viðskiptavinir eru aðrir auk þess sem stjórnun sjálfboðaliða kallar á annars konar mannauðsstjórnun.
Nánari upplýsingar og skráning hér:
Stjórnendur og starfsmenn í þriðja geiranum
Facebook síða Opna Háskólans