U19 kvenna - 1-2 tap gegn Noregi
U19 ára landslið kvenna tapaði 1-2 gegn Noregi í æfingaleik, en leikið var í Lulea í Svíþjóð. Það var Ída Marín Hermannsdóttir sem skoraði mark Íslands í seinni hálfleik.
Íslenska liðið var 0-2 undir í hálfleik en sýndi frábæra baráttu í þeim síðari og var ekki langt frá því að ná að jafna.
Stelpurnar mættu einnig Svíþjóð á miðvikudaginn og endaði sá leikur með 1-3 sigri Svía.
Byrjunarlið Íslands
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (M)
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Hildur Þóra Hákonardóttir
Katla María Þórðardóttir (F)
Íris Una Þórðardóttir
Eva Rut Ásþórsdóttir
Clara Sigurðardóttir
Ída Marín Hermannsdóttir
Birta Georgsdóttir
Helena Ósk Hálfdánardóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir