Dómarar frá Wales á leik Grindavíkur og KA
Dómarar frá Wales munu dæma leik Grindavíkur og KA á laugardaginn í Pepsi Max deild karla, en um er að ræða lið í samstarfi landanna um dómaraskipti.
Dómari verður Tom Owen. Honum til aðstoðar verða Ashley Davis og James Sheils.