Evrópukeppnin í Futsal - Vængir Júpíters hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum
Vængir Júpíters eru þessa dagana á Kýpur þar sem riðill þeirra í Evrópukeppni félagsliða í Futsal fer fram.
Á þriðjudag mætti liðið Pinarola frá Bratislava í Slóvakíu og endaði sá leikur með 8-0 sigri Pinarola.
Á miðvikdag mættu Vængir Júpíters síðan Omonia Nicosia frá Kýpur og endaði sá leikur með 8-1 sigri heimamanna. Daníel Rögnvaldsson skoraði mark þeirra í leiknum.
Vængir Júpíters mæta Gazi Universitesi frá Tyrklandi og hefst sá leikur kl. 13:30.