Vængir Júpíters hefja leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í Futsal á þriðjudag
Vængir Júpíters hefja leik á þriðjudag í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í Futsal, en leikið er á Kýpur.
Liðið mætir SK Pinerola Bratislava á þriðjudag og hefst leikurinn kl. 13:30.
Í riðlinum eru einnig Omonia frá Kýpur og Gazi Universitesi SK frá Tyrklandi.