U19 kvenna - Tvær breytingar á hóp
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur þurft að gera eina breytingu á hópnum fyrir leikina gegn Noregi og Svíþjóð.
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Arna Eiríksdóttir geta ekki tekið þátt vegna meiðsla og í þeirra stað koma Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz og Sæunn Björnsdóttir.
Stelpurnar mæta Svíþjóð 28. ágúst og Noregi 30. ágúst.