FH-Breiðablik frestað til mánudags
Mótanefnd KSÍ hefur samþykkt ósk FH og Breiðabliks um að fresta leik þeirra í Pepsi Max deild karla til mánudags.
Eftirfarandi leik hefur því verið breytt:
Pepsi Max deild karla
FH - Breiðablik
Var: Sunnudaginn 25. ágúst kl. 18.15 á Kaplakrikavelli
Verður: Mánudaginn 26. ágúst kl.18.00 á Kaplakrikavelli
Áður hafði leik ÍBV og HK/Víkings í Pepsi Max deild kvenna verið frestað, en leikurinn átti að fara fram í Vestmannaeyjum í dag, sunnudag.