Selfoss Mjólkurbikarmeistari kvenna!
Selfoss er Mjólkurbikarmeistari kvenna 2019 eftir 2-1 sigur gegn KR í framlengndum leik.
KR skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu þegar Gloria Douglas skoraði frábært mark. Það tók Selfoss ekki nema um tólf mínútur að jafna, en þar var að verki Hólmfríður Magnúsdóttir.
Staðan því 1-1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var jafn og skemmtilegur, en hvorugu liðinu tókst þó að skora. Því var gripið til framlengingar og var það Þóra Jónsdóttir sem skoraði sigurmark Selfoss á 102. mínútu leiksins.
2-1 sigur hjá Selfoss staðreynd og þær fögnuðu vel og innilega í leiksins, en þetta er fyrsti bikarmeistaratitill félagsins.
Til hamingju Selfoss!