Egill Arnar Sigurþórsson dæmir bikarúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Egill Arnar Sigurþórsson dæmir bikarúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna, en þar mætast Selfoss og KR. Leikurinn fer fram laugardaginn 17. ágúst kl. 17:00.
Honum til aðstoðar verða þeir Gunnar Helgason og Kristján Már Ólafs.
Eftirlitsmaður verður Halldór Breiðfjörð.
Allir starfa þeir í efstu deildum karla og kvenna.