U17 karla - Ísland mætir Færeyjum í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu
U17 ára landslið karla mætir Færeyjum á laugardag í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu.
Leikurinn hefst kl. 08:30 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með textalýsingu frá honum á Facebook vef KSÍ.
Strákarnir hafa leikið tvo leiki á mótinu. Fyrst mættu þeir Mexíkó og var staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Gripið var til vítaspyrnukeppni þar sem Mexíkó stóð uppi sem sigurvegari. Ísland mætti síðan Finnlandi og endaði sá leikur með 1-5 tapi.