Miðasala hafin á bikarúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna
Miðasala er hafin á tix.is á bikarúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Þar mætast Selfoss og KR og fer leikurinn fram laugardaginn 17. ágúst kl. 17:00 á Laugardalsvelli.
Við hvetjum fólk til að fjölmenna á völlinn og styðja sitt lið til sigurs!
Miðaverð
Fullorðnir - 2000 krónur
Frítt fyrir 16 ára og yngri