Grasrótarverkefni KSÍ - Komdu í fótbolta á ferðinni í næstu viku
Grasrótarverkefni KSÍ, Komdu í fótbolta, í umsjón Siguróla Kristjánssonar (Mola) verður á ferðinni um Vestfirði í næstu viku.
Moli verður á Patreksfirði mánudaginn 12. ágúst kl. 17:00, en þar verða krakkar frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal.
Þriðjudaginn 13. ágúst verður hann á ferð og flugi og mætir á fjóra staði.
Klukkan 10:00 verður hann á Þingeyri, kl. 12:00 á Flateyri, kl. 14:00 á Suðureyri og síðan endar hann á Súðavík kl. 16:00.
Verkefnið hefur fengið frábærar viðtökur út um allt land og er mjög ánægjulegt að sjá hversu vel er mætt hvert sem Moli mætir.