U17 karla - Ísland mætir Finnlandi á miðvikudag á Opna Norðurlandamótinu
U17 ára landslið karla mætir Finnlandi á miðvikudag í öðrum leik liðsins á Opna Norðurlandamótinu, en leikið er í Danmörku.
Leikurinn hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með textalýsingu á Facebook síðu KSÍ
Strákarnir töpuðu gegn Mexíkó eftir vítaspyrnukeppni í fyrsta leik liðsins á mótinu.