Stephanie Frappart dæmir leik Liverpool og Chelsea um Ofurbikar Evrópu
Stephanie Frappart dæmir leik Liverpool og Chelsea um Ofurbikar Evrópu, en þetta er í fyrsta skipti sem kona dæmir einn af stærstu leikjum karlamegin.
Aðstoðardómarar leiksins verða einnig konur, Manuela Nicolosi frá Frakklandi og Michelle O´Neal frá Írlandi. Þremenningarnir dæmdu úrslitaleik HM 2019 í Frakklandi.
Fjórði dómari verður Cuneyt Cakir.
Leikurinn fer fram 14. ágúst í Istanbúl á Vodafone Park.
Hægt er að lesa meira um þetta á vef UEFA:
Þess má geta að Frappart og Nicolosi dæmdu leik Þór/KA gegn Zorkij á Akureyri í Meistaradeild Evrópu árið 2013.