Grasrótarverkefni KSÍ - Komdu í fótbolti - á ferð og flugi í vikunni
Siguróli Kristjánsson, eða Moli, hefur verið á ferð á flugi með grasrótarverkefni KSÍ, Komdu í fótbolta, í vikunni og hefur mæting verið frábær á æfingarnar.
Mikil ánægja hefur verið með æfingarnar og mættu t.a.m. 25 krakkar þegar Moli mætti til Víkur í Mýrdal.
Dagskrá fyrir næstu vikur er í vinnslu.
Moli hefur farið á eftirfarandi staði í vikunni:
Djúpavog
Kirkjubæjarklaustur
Vík í Mýrdal
Flúðir og Bláskógabyggð
Stokkseyri
Eyrarbakka
Hólmavík
Búðardal