Stjarnan og Valur leika í Evrópudeildinni á fimmtudag
Stjarnan og Valur leika seinni leiki sína í 2. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA á fimmtudag. Stjörnumenn taka á móti spænska liðinu Espanyol á Samsung-vellinum í Garðabæ og hefst leikurinn kl. 19:15. Íslandsmeistarar Vals mæta Ludogorets á heimavelli þeirra síðarnefndu í Razgrad í Búlgaríu og hefst sá leikur kl. 17:30 að íslenskum tíma.
Fyrri viðureign Stjörnunnar og Espanyol lauk með 4-0 sigri Spánverjanna, en sá leikur fór fram í Barcelona. Valsmenn gerði 1-1 jafntefli við Ludogorets þegar liðin áttust við á Origo-vellinum að Hlíðarenda
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net