Enskir dómarar að störfum í Pepsi Max deild karla og Inkasso deild karla á næstunni
Enskir dómarar, Matt Donohue og Akil Howson, verða að störfum á leikjum í Pepsi Max deild karla og Inkasso deild karla á næstunni.
Matt dæmir leik Víkings Ó. og Þróttar R. í Inkasso deild karla fimmtudaginn 25. júlí og Akil verður þar aðstoðardómari. Það sama á við um leik Magna og Fjölnis föstudaginn 27. júlí.
Þeir verða síðan að störfum á leik Víkings R. og Breiðabliks í Pepsi Max deild karla sunnudaginn 29. júlí. Akil verður þar aðstoðardómari og Matt fjórði dómari.