Valur og Stjarnan leika í Evrópudeildinni á fimmtudag
Valur og Stjarnan verða í eldlínunni í Evrópudeildinni á fimmtudag þegar liðin leika fyrri viðureignir sínar í 2. umferð undankeppninnar.
Valur lék í forkeppni Meistaradeildar UEFA gegn Maribor frá Slóveníu. Þar höfðu slóvensku meistararnir betur, sem þýddi þó að Valsmenn, sem landsmeistarar á Íslandi, færðust yfir í Evrópudeildina. Mótherjar Vals verða liðsmenn Ludogorets frá Búlgaríu og fer fyrri leikur liðanna fram á Origo-vellinum að Hlíðarenda á fimmtudag kl. 19:00, og seinni leikurinn í Razgrad í Búlgaríu þann 1. ágúst.
Stjarnan, sem sló Levadia Tallinn frá Eistlandi út á dramatískan hátt, mætir spænska liðinu Espanyol í næstu umferð. Fyrri leikur Stjörnunnar og Espanyol verður í Barcelona á fimmtudag, en seinni leikurinn á Samsung-vellinum í Garðabæ þann 1. ágúst.