Finnskir dómarar í Pepsi Max deild kvenna
Heil umferð verður leikin í Pepsi Max deild kvenna á þriðjudag. Tveir leikir hefjast kl. 18:00 og þrír leikir kl. 19:15. Í viðureign Fylkis og Þórs/KA á Würth-vellinum í Árbæ verða tveir finnskir dómarar í dómaratríóinu. Sini Hakala er dómari leiksins og landa hennar Alisa Levälampi/Akil Howson verður aðstoðardómari 2. Aðstoðardómari 1 verður Eydís Ragna Einarsdóttir. Þátttaka finnsku dómaranna er hluti af norrænu dómaraskiptaverkefni, sem er vel þekkt karlamegin, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland er með í norrænu dómaraskiptunum kvennamegin.
Smelltu hér til að skoða leikina og stöðuna í Pepsi Max deild kvenna
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net