A kvenna mætir Frökkum 4. október
A landslið kvenna mun leika vináttuleik við Frakka þann 4. október næstkomandi. Leikið verður í Frakklandi og mun leikstaður verða staðfestur innan skamms. Þar með er ljóst að íslenska liðið leikur tvo leiki í október, en liðið mætir Lettlandi í undankeppni EM 2021 þann 8. október í Riga, fjórum dögum eftir vináttuleikinn við Frakka. Næstu tveir leikir Íslands eru mótsleikir á Laugardalsvelli gegn Ungverjalandi 29. ágúst og Slóvakíu 2. september, en um er að ræða fyrstu leikina í undankeppni EM 2021. Sala mótsmiða sem gilda á alla heimaleiki A kvenna í undankeppni EM stendur nú yfir og hafa selst um 270 mótsmiðar.
Mótsmiðasala á alla heimaleiki A kvenna í undankeppni EM 2021
Leikirnir í undankeppni EM 2021
Landsleikir ársins hjá A kvenna