Helgi Mikael dæmir í Rúmeníu á fimmtudag
Helgi Mikael Jónasson verður dómari á leik rúmenska liðsins Universitatea Craiova og Sabail frá Aserbaídsjan í undankeppni Evrópudeildar UEFA, en liðin mætast í Rúmeníu á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Bryngeir Valdimarsson, og varadómari verður Ívar Orri Kristjánsson. Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Tyrkinn Mehmet Murat Ilgaz.