Sækir sérstakt lögfræðinám á vegum UEFA
Haukur Hinriksson, lögfræðingur á skrifstofu KSÍ, er í hópi 24 þátttakenda í sérstöku lögfræðinámi á vegum Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) - UEFA Football Law Programme (FLP). FLP fjallar m.a. um alþjóðlegar félagaskiptareglur, CAS áfrýjunardómstólinn, og ýmis önnur verkefni um lög og reglugerðir í alþjóðlegri knattspyrnu.
Alls sóttu 60 fulltrúar knattspyrnusambanda innan UEFA um að komast í FLP-námið og komust 24 umsækjendur inn. Sérstök nefnd á vegum UEFA (The Scientific Committee of the UEFA Football Law Programme) fór yfir umsóknirnar. FLP-námið mun án efa nýtast Hauki vel í sínum störfum fyrir KSÍ.