Þorvaldur dæmir leik FK Partizani og Qarabag FK
Það eru ekki bara íslensku félagsliðin sem verða í eldlínunni í UEFA-mótum félagsliða í vikunni. Þorvaldur Árnason verður dómari í viðureign FK Partizani frá Albaníu og Qarabag frá Aserbaídsjan, sem mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn fer fram í Tirana í Albaníu á miðvikudag. Aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon, og varadómari Pétur Guðmundsson. Eftirlitsmaður UEFA á leiknum verður Konrad Plautz frá Austurríki.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.