Ívar Orri dæmir í Serbíu
Ívar Orri kristjánsson verður dómari á viðureign serbneska liðsins FK Cukaricki og FC Banants frá Armeníu í Evrópudeild UEFA, en liðin mætast í Serbíu á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Birkir Sigurðarson og Oddur Helgi Guðmundsson og varadómari verður Helgi Mikael Jónsson. Eftirlitsmaður leiksins verður síðan Lettinn Andrejs Sipailo.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.