Meistaradeildin: Valsmenn til Slóveníu
Dregið var í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í höfuðstöðvum UEFA í dag, þriðjudag. Íslandsmeistarar Vals mæta Maribor frá Slóveníu og leika Valsmenn fyrri leikinn á heimavelli 9. eða 10. júlí og svo seinni leikinn ytra 16. eða 17. júlí.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.