Evrópudeildin: Mótherjar íslensku liðanna
Dregið hefur verið í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA, en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon, Sviss. Stjarnan var eina íslenska liðið í efri styrkleikaflokki og verða mótherjar Stjörnumanna Levadia Tallinn frá Eistlandi. Fyrri viðureign liðanna verður í Garðabænum. KR-ingar mæta norska liðinu Molde og leika fyrri leikinn á útivelli, en Breiðablik, sem mætir Vaduz frá Liechtenstein, byrjar á heimavelli.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.