Áfrýjunardómstóll KSÍ staðfestir 5 leikja bann Björgvins Stefánssonar
Þann 12. júní kom áfrýjunardómstóll KSÍ saman og tók fyrir mál nr. 1/2019 - Knattspyrnudeild KR og Björgvin Stefánsson gegn aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Dómurinn staðfestir úrskurð aga- og úrskurðarnefndar um 5 leikja bann Björgvins Stefánssonar í mótum á vegum KSÍ og frá leikvelli Hauka að Ásvöllum. Dómurinn fjallar ekki um sekt Hauka þar sem þeim hluta úrskurðar aga- og úrskurðarnefndar var ekki áfrýjað og því stendur sektin óhögguð.
Smellið hér til að skoða dóminn í heild sinni
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net