2. umferð Mjólkurbikars kvenna leikin í vikunni
2. umferð Mjólkurbikars kvenna verður leikin í vikunni. Alls eru sex leikir á dagskrá sem fara fram á þriðjudag og miðvikudag. Sigurvegararnir úr þessum sex viðureignum verða í pottinum ásamt liðunum tíu í Pepsi Max deild kvenna þegar dregið verður í 16-liða úrslit í höfuðstöðvum KSÍ á föstudag kl. 15:00.
Mynd: Fótbolti.net, Hafliði Breiðfjörð