Sex mörk U16 kvenna gegn Króatíu
U16 landslið kvenna lék í dag, laugardag, lokaleik sinn í UEFA Development Tournament sem fram fór í Króatíu. Sex marka sigur vannst á heimastúlkum og komu fimm markanna í síðari hálfleik. Snædís María Jörundsdóttir gerði tvö fyrstu mörk Íslands í leiknum, og hin mörkin gerðu þær Hildigunnur ýr Benediktsdóttir, Sara Montoro, Hrefna Steinunn Aradóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir.
Ísland skoraði því alls 27 mörk í leikjum sínum þremur í mótinu og fékk ekki neitt mark á sig.