Fimmtán marka sigur U16 kvenna á Norður-Makedóníu
U16 landslið kvenna mætti Norður-Makedóníu í dag í öðrum leik sínum í UEFA Development Tournament, en leikið er í Króatíu. Skemmst er frá því að segja að íslenska liðið hafði mikla yfirburði á öllum sviðum leiksins og vann ótrúlegan 15-0 sigur. Áður hafði Ísland mætt Búlgaríu og unnið 6-0. Amanda Jacobsen Andradóttir skoraði fjögur mörk í leiknum, Snædís María Jörundsdóttir þrjú mörk og þær Hildur Lilja Ágústsdóttir og Aníta Ýr Þorvaldsdóttir tvö mörk hvor.
Næsti leikur íslenska liðsins, og sá síðasti í mótinu, er gegn gestgjöfunum, Króatíu, á laugardag.