Nettókostnaður umfram kr. 75.000 á lið greiddur af KSÍ
Á fundi stjórnar KSÍ þann 11. apríl síðastliðinn var samþykkt að halda fyrirkomulagi á greiðslu ferðaþátttökugjalds óbreyttu, skv. reglugerð KSÍ um ferðaþátttökugjald. Nettókostnaður vegna ferðaþátttökugjalds umfram kr. 75.000 á lið er greiddur af KSÍ.
Þessar upplýsingar hafa þegar verið sendar aðildarfélögum í dreifibréfi nr. 7/2019, og þar er einnig að finna útreikninga á ferðaþátttökugjaldi félaga fyrir árið 2019. Smellið hér að neðan til a skoða dreifibréfið og útreikningana.
Mynd: Fótbolti.net, Hafliði Breiðfjörð