U16 kvenna - 6-0 sigur gegn Búlgaríu
U16 ára landslið kvenna vann 6-0 sigur gegn Búlgaríu í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament, en leikið er í Króatíu.
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði þrjú mörk, Hildur Lilja Ágústsdóttir tvö og Aníta Ýr Þorvaldsdóttir eitt.
Ísland mætir næst Makedóníu og fer sá leikur fram á fimmtudaginn, en hann hefst kl. 09:00 að íslenskum tíma.