7.474 áhorfendur á leikjum 2. umferðar
2. umferð Pepsi Max deildar karla lauk á mánudagskvöld með viðureign Víkings R. og FH á Eimskipsvellinum í Laugardal. Áhorfendur á þeim leik voru 1.280, en best sótti leikurinn í umferðinni var viðureign Fylkis og ÍA á Würth-vellinum í Árbænum, þar sem 1.670 mættu og fylgdust með hörkuleik milli Fylkis og ÍA. Heildaráhorfendafjöldi á leikjum 2. umferðar var 7.474, eða 1.246 að meðaltali á leik.
16 mörk voru skoruð í leikjunum 6 og lauk fjórum þeirra með jafntefli. Ekkert lið er með fullt hús eftir fyrstu tvo leikina og 5 lið eru með 4 stig. Eyjamenn eru einir án stiga og án marks.
Mynd: Fótbolti.net, Hafliði Breiðfjörð