U17 karla - Mæta Rússlandi í dag í fyrsta leik á EM 2019
U17 ára landslið karla mætir Rússlandi í dag í fyrsta leik liðsins á EM 2019, en leikið er á Írlandi.
Strákarnir mættu til Dublin á miðvikudag og hófu undirbúning sinn fyrir mótið, en Ísland er í riðli með Rússlandi, Ungverjalandi og Portúgal. Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í átta liða úrslit keppninnar.
Leikurinn gegn Rússlandi hefst kl. 13:00 og fer fram á Home Farm í Dublin.
Hægt verður að fylgjast með gangi leiksins á miðlum KSÍ og UEFA.
Strákarnir mæta síðan Ungverjalandi þriðjudaginn 7. maí og Portúgal föstudaginn 10. maí.