U16 kvenna - Tvær breytingar á hópnum sem fer til Króatíu
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur þurft að gera tvær breytingar á hópnum sem fer til Króatíu og keppir á UEFA Development Tournament.
Aníta Ólafsdóttir, ÍA, og Amelía Fjeldsted, Keflavík, hafa þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Í þeirra stað koma þær Viktoría Diljá Halldórsdóttir, Haukum, og Elma Karen Gunnarsdóttir, FH, inn í hópinn.
Ísland mætir Búlgaríu á þriðjudaginn í fyrsta leik sínum á mótinu og hefst hann kl. 10:00 að íslenskum tíma.